It´s happy time

It´s mine

14.06.2007 09:49:45 / black

ég snilli

jæja hvað segið þið þá..? heyrðu ég segi bara allt það fína held ég bara.. heyrðu ég fór síðustu helgi á heimaslóðir sem sagt blönduós.. ég keypti bíl af jóa á föstudaginn og ég ákvað að fara norður í svona prufukeyrslu og sjá hvað kagginn myndi eyða.. en já svo á föstudeginum þegar mín var komin norður þá fór ég í heimsókn til hans villa míns.. það var fínt að komast loksins til hans.. en já svo kíkti ég á rúntinn með henni nínu minni.. svo fórum við bara snemma heim að sofa.. svo var bara slappað af á laugardeginum.. við leifur reyndar skiptum dótinu okkar og svona en það var bara gert í góðu..:) en svo um 8 þá var ég á leiðinni í 30ára afmæli hjá frænda mínum.. það var geggjað mikið stuð þar..8) svo komu fótboltastrákarnir í afmælið eftir einhverja óvissuferð hjá þeim og mér, nínu og hörpu var boðið að koma með þeim í rútuna og fara inn á krók á djammið þar... þar var tvistað og tjúttað..:lol: en já svo var drukkið og haft bara gaman.. ég var ekki komin heim fyrr en um hálf 6.. en það fyndna var við það að þegar ég vaknaði þá var ég alls ekkert þunn..;) ég kíkti til ömmu og afa og svo til pabba að ná í póstinn minn.. svo lagði ég af stað um 5 og allt gekk eins og í sögu þar til ég kom í göngin.. haldið þá ekki að mín hafi bara hálfdottað og keyrt utan í vegginn og náði að velta bílnum.. 8|þetta var mikið sjokk en ég er í heilu lagi enn bara öll út í marblettum og svo er ég nottla með far eftir beltið.. en bílinn er ónýtur :cry: og jói er að finna annan bíl handa mér...:) en þetta fór allt saman vel að lokum.. mér tókst að láta loka göngunum í næstum 2 tíma :lol: og svo var sagt í mogganum að það hefði verið kona á þrítugsaldri sem hefði keyrt á og velt bílnum..8| ég þakka fyrir gott hrós en þarf ég ekki að komast fyrst á hann??? :$

en allavegana ég þakka fyrir mig í bili og ég heyri í ykkur eftir að ég er búin að skella mér á bíladaga... :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 09:44:01 / black

ég löt

hæhæ ég veit ég er búin að vera alveg ógeðslega löt að blogga ég skal reyna að vera duglegri að blogga... ég geri það vonandi fljótlega...

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 13:19:12 / black

hádí....

hæhæ jæja já þá er febrúar alveg að verða búinn.. guð hvað tíminn líður hratt.. áður en maður veit af þá er bara komið sumar... :lol: en já það er helgi framundan... svaka stuð :D en já mamma er búin að vera núna svona inn og útaf sjúkrahúsum alltaf í einhverjum myndatökum og svo er held ég bara verið að tæma allt blóð úr konunni... en já hún er búin að vera með einhvern blett í öðru auganu svona eins og þegar það er búið að taka mynd af manni og maður fær svona punkt í augað eftir flassið í smátíma nema það er ekki þannig hjá henni.. það verið að athuga hvort þetta sé nokkuð blóðtappi sem er að teppa eikkað þarna eða hvað og ef svo er þá á að athuga hvaðan hann kemur... :S mamma og þær í vinnunni eru búnar að vera að grínast svo mikið með þetta að þær eru bara farnar að skipuleggja jarðarförin og hver á að syngja og hver verður með veitingarnar í erfisdrykkjunni og svona.. því miður en ég hef því miður ekki húmor fyrir svona...:frown: og svo var mamma að fara í eina myndatökuna enn áðan og þá sögðu stelpurnar vonandi sjáumst við aftur gunna mín og ef ekki þá bara sjáumst við þegar við förum líka... það má alveg grínast en mér finnst þetta tooo mucccchhhh..... :!: en já ég vona bara að það fari að koma eikkað út úr þessu hjá kellu... en já ég veit ekki alveg hvað maður á að gera af sér um helgina... allavegana slappa af og hafa það gott.. það er sko númer 1 en svo kíkjir maður á vinina og hanga með þeim... :haha: en ég kveð ykkur börnin mín að sinni og ég skal reyna að vera duglegri að skrifa... :klikk:

p.s og þið megið endilega vera duglega að kvitta fyrir ykkur þið sem komið hérna inn á og jafnvel að koma með hugmyndir fyrir mig með síðuna... :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 09:41:53 / black

nýja árið

jæja þá er nýja árið gegnið í garð og strax búinn einn mánuður af því... 8| nýja árið fyrir mér vona ég að verði gott því að síðustu 2 ár hefur það ekkert verið neitt æði.. :$ en já við leifur hættum saman í byrjun þessa árs... :$ en svona er lífið og það gengur sko áfram.. en já ég fékk vinnu í háskólanum í reykjavík hliðin á versló við ræstingar... 8) þetta er  helvíti fín vinna.. mér líður allavegana vel í henni og mamma er að vinna þar líka... en já ég fór norður í byrjun þessa mánaðar og var með litla bróður sem varð allt í einu veikur og þurfti að vera bara heima og komst ekki á þorrablótið á hvammstanga...:whut: bömmer.. :$ well life is life... og svo er ég komin í fjarnám í nuddinu.. og svo vinna ég stundum í heilsustúdíóinu svona þegar hún þarf á mér að halda þó að sé að spá í að hætta þar... :$ en annars er bara allt gott að frétta héðan.... en ef ykkur langar að vita eikkað meira þá bara spyjið þið... :lol:

p.s munið að kvitta fyrir ykkur :klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 16:41:41 / black

sorglegt...

ég fann þetta á netinu, ég bara varð að setja þetta hér inn og leyfa ykkur að lesa þetta, allavega þið sem hafið ekki lesið þetta.Sennilega einhver ykkar búin að sjá og lesa þetta.
Þetta er átakanlegt.

Ljótur veruleiki Í vímu,
í skít og reyk
áttu þau lítinn ástarleik
en þau gleymdu góðum sið
og líf kviknaði í móðurkvið.

Allt sem hún átti í mánuði níu
var hass og pípa með skítuga síu.
Hún var marin og með bláa bauga
verðandi móðir með glóðurauga.

Loks fæddist lítill drengur
gullmoli var hann og lífsins fengur.
En lítill friður var með þessum sálum
því ekkert breyttist í hennar málum.

Hún leit ekki á lífið sem mömmuleik
hún þurfti meira - bæði vín og reyk.
Og þrátt fyrir ásakanir og skammir
voru vatnssoparnir ætíð rammir.

Og þegar hana fór að langa
gleymdi hún munninum svanga.
Hún læddist á hverju kvöldi út
og hunsaði alla ábyrgð á litla kút.

Það var köld og dimm vetrarnótt
hann var svangur og með hitasótt.
Einn í félagslegu steyptu skjóli
grét hann eða svaf í mömmubóli.

Svo kom hún heim í morgunsárið
og sá hvar glitraði á barnstárið,
sem staðnað hafði á kaldri kinn
hún faðmaði aldrei framar drenginn sinn.

Líf barnsins lagði hún að veði fyrir skammvinna,
ómerkilega gleði fallegu augun mun hún aldrei aftur sjá
sem hún elskaði heitar en hægt er að tjá.

Alla daga eftir stóð hún stjörf og stíf
það hafði verið tekið frá henni allt líf.
Hún var full af sorginni dimmleitri,
því hún kæfði barnið sitt með eitri.
Tvö líf fórust þessa nótt
því afskaplega kyrrt og hljótt
en þó féllu þau með ólíkum hætti
féllu þau fyrir fíknarmætti.

Góði Guð bænheyrðu bænir mínar

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 21:15:28 / black

desember

jæja þá er desember kominn og það styttist í jólin... ;) fyrirgefip hvað ég er búin að vera löt að skrifa... en já af mér er bara allt gott að frétta.. er farin að vinna í heilsustúdíói... bara gaman... en ég veit ekki alveg hvað á að skrifa en ef þið viljið spyrja að einhverju þá go ahead.... já og ég sakna nínu minnar ekkert smá mikið... :cry:

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 16:48:36 / black

hæhæ...

hæhæ jæja nú er ég búin að vera í sveitinni og þetta er alls ekki svo slæmt.. vinnan sem ég er í er bara helvíti fín... sirrý er farin suður og hennar er sárt sakanð í vinnunni... :( en já ég er að vinna í sláturhúsinu á blönduósi ef þú vissir það ekki.. ég sakna reykjavíkur ekkert smá mikið..:cry: en eins og ég sagði í fyrra blogginu mínu þá bý ég heima hjá tengdó og þau er svo yndisleg við mig.:lol:. ég verð að vinna hérna til 1.nóv og eftir það mun ég koma suður... ohh ég get ekki beðið.8). en ég mun samt sakna stelpnanna sem ég er að vinna með.. þær eru svo fyndnar og skemmtilegar.. þær eru 3 sænskar og ein pólsk og svo er auðvitað hún björg.. hún er yfirmaðurinn okkar þarna.. þessar 3 sænsku heita evelynn, lynn og sofia og þær búa einar með 7 strákum í einu mesta gula húsinu hérna á blö..8| en já næstu helgi verður svo "slúttið" hjá okkur í vinnunni þá er sláturhúsballið hérna á blö.. leifur ætlar að koma norður þá og fara mep mér.. þetta verður svakalegt fyllirí..:haha: bara gaman.. en ég veit ekki alveg hvað ég geri þegar ég kem suður en ég hef allavegana aukavinnunna hjá broadway að þjóna og kannski get ég fengið fulla vinnu þar.:S. en allavegana þá hlakka ég til að fá að hitta alla vini mína þegar ég kem suður og ástina mína... ;)

kær kveðja úr sveitinni:$

p.s munið að kvitta fyrir ykkur....:klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 18:03:18 / black

sorry

hæhæ sorry hvað ég er búin að vera löt við að skrifa en það er bara mikið búið að ganga á hjá mér og ég hef ekkert getað verið að blogga...

við leifur fórum út núna 10.maí og komum heim 18.maí. þetta var ekkert smá gaman. við gerðum fullt þarna úti og leifur drakk alveg örugglega 100 bjóra bara sko úti svo veit ég ekkert hvað hann drakk mikið áður en við fórum út eða þegar við vorum að koma heim. en þetta var ekkert smá gaman og ég get ekki beðið eftir að fara aftur.

eins og stóð í síðasta blogginu mínu þá var afi minn kominn upp á líknardeild og lá þar alveg þar til að hann dó. afi dó 19.maí um 11 leytið um kvöldið. það er svo skrítið að hann skuli vera farinn því að hann sem var alltaf svo heilsuhraustur. en svona er þetta víst við fáum engu ráðið um þetta. en svo vorum við leifur að flytja enn einu sinni og núna búum við með nínu og tedda í rosalega fallegri íbúð sem gæti vel verið að við leifur kaupum kannski.. en það er ekkert víst. en það besta við þessa íbúð er það að það er kannski svona 10 mínútna ganga í kirkjugarðinn til afa og nú get ég farið á hverjum degi ef ég vil til hans og spjallað við hann um heima og geima.. sagt honum frá því sem er að gerast hérna og bara allt.

en við leifur fórum líka á landsmót snigla og það var ekkert smá gaman. þetta er eitthvað sem ég er alveg til í að gera á hverju ári. við fórum með mömmu, jói pabba, og huldu en mamma og jói pabbi fóru á hjóli en hulda kom með okkur í bílnum. matti kom svo á sínum eigin bíl aðeins á eftir okkur. þó að við leifur drukkum ekkert mikið þá var samt svo gaman að horfa á mömmu, huldu jóa pabba og matta hafa gaman við skemmtum okkur eiginlega mest bara við það að horfa á þau...

en svo fórum við leifur, inga og tímon í bústaðinn hans tímons sem er rétt fyrir utan akureyri á fimmtudeginum fyrir versló,  ef maður myndi keyra svona í 5-7 mín í viðbót þá er maður komin á svalbarðseyri. sem við gerðum 2 og við leigðum bara laugina þar. ohh hvað það var gott að komast í sturtu og svona. því að í bústaðnum var ekkert rafmagn. það var bara heppni að það var vatn þarna þannig að við gátum komist á klósettið og gátum tannburstað okkur. það fyrsta sem strákarnir gerðu þegar komið var í bústaðinn var að slá grasið. og það var ekkert smá mikið af grasi þarna. það náði mér upp á mjöðm. og tímon byrjaði að slá og hann er álíka jafnhár og ég og hann nottla var að slá þetta með orfi. og það var komið myrkur þegar við komum þarna þannig að hann sá varla hvað hann var að gera. þetta var bara fyndið að sjá þetta.. þú þurftir að vera á staðnum til að skilja hvað ég er að meina... en já þannig að við fengum okkur bara bjór á meðan og leifur drakk svoldið hratt og svo þegar tímon var búinn að slá það sem þurfti að slá þetta kvöld þá átti leifur að tjalda tjaldinu sem við vorum með frekar stórt tjald og hann týndist í því... :lol: en svona var þetta bara.. nína og teddi komu svo á föstudeginum en voru svo óheppin að það var keyrt aftan á þau þegar þau ætluðu að fara að beyja til að keyra upp að bústaðnum.. en svo á sunnudeginum þá fórum við leifur, nína og teddi á blönduós og nína og teddi gistu en við leifur ætluðum að gera það líka en hættum við og fórum alla leið suður.. svo á mánudeginum var afmælið hennar natalíu og ég var búin að biðja mömmu um að halda afmælin okkar saman því að ég á svo afmæli 12 dögum á eftir henni og ég nennti ekki að fara að halda upp á afmælið mitt svo seinna þannig að sama fólkið þyrfti að koma aftur í veislu svo til mín. það er bara algjör óþarfi.. en já núna eru bara 4 dagar í afmælið mitt.. vá ég er að verða 19 ára og svo verður nína 20 ára 6 dögum á eftir mér... vá við erum að verða gamlar nína mín... :haha:

en já svo eru kannski komnar 3 vikur síðan að ég greindist með flogaveiki. :cry:.  ég má ekki byrja að vinna fyrr en í fyrsta lagi í þarnæstu viku en ég er að fara að vinna í sláturhúsinu heima yfir eina sláturtíð bara prófa hvernig það er.. ég mun búa heima hjá tengdamömmu og tengdapabba.. ég veit margir hugsa ég meina hún á pabba þarna og ömmu og afa akkuru býr hún ekki hjá þeim.. vitið það ég held ég geti það bara ekki.. litli bróðir verður farinn í skólann og þá held ég bara að ég geti ekki verið hjá pabba..auk þess þá buðu tengdaforeldrar mínir mér að vera hjá sér og svo verður systir hans leifs hún sirrý þarna líka en hún er æskuvinkona mín. hún verður með litlu skvísuna sína með sér líka. hún verður einnig að vinna í sláturhúsinu.. en svona er þetta ég fer norður fljótlega eftir 1 sept. og ég veit ekki alveg hvað ég verð lengi þarna kannski í 2 mánuði eða lengur en ég veit það ekki...


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 11:06:50 / black

hæhæ

jæja þá er afi minn kominn inn á líknardeild og verður þar.. hann á ekki mikið eftir greyið maðurinn en hann er ekki að þjást.. hann kallaði á mig í gær og spurði um systur mína hana jóhönnu sem er ný orðin 6 ára.. en annars er hann bara sofandi..  hann var frekar sprækur í gær og talaði mikið og fékk að reykja sinn vindil í friði.. svo kallaði hann á mig og bað mig um að ýta sér aftur fram í reykherbergi svo hann gæti klárað vindilstubbinn sinn.. þegar við vorum komin í reykherbergið þá bað hann mig um að opna hurðina og ýta sér að henni og ég gerði það.. svo þegar hann var kominn að þröskuldinum þá sagði hann við mig að ég ætti að ýta honum út og sleppa honum.. ég sagðist ekki geta það því að ég vildi aldrei sleppa honum.. þá sagði hann að ég myndi aldrei missa hann eða sleppa honum heldur væri hann bara ekkert á leiðinni neitt en ég veit það að hann veit alveg að hann er að fara og það séu allir að gera sig tilbúna fyrir það... það er bara svo erfitt að sjá  hann liggja í rúminu og geta ekkert gert og þurfa að fá alla hjálp frá öllum...

en hann er ekki að þjást þannig að það er bara gott..

jæja ætli það sé ekki best að fara að koma sér til gamla mannsins...

munið bara að kvitta fyrir ykkur...


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 12:46:48 / black

jæja.....

jæja þá styttist í utanlandsferðin okkar leifs.. en ég var að fá fréttir frá mömmu núna áðan um að afi minn hefði hrunið niður heima hjá sér áðan... :S það er svo erfitt að sjá hann svona eins og hann er núna...:cry: það sést alveg að honum líður illa þó að hann segir það ekki... þetta tekur svo mikið á hann þar sem hann var alltaf vinnandi og svo núna má hann ekki gera neitt... :$

þegar ég var yngri þá var hann minn besti vinur.. hann nennti alltaf að leika við mig og koma með mér út og svo fékk ég alltaf að koma með í skúrinn þegar ég nennti ekki að vera lengur út í sandkassanum... svo eitt skiptið þegar ég var í skúrnum hjá afa var mamma með okkur líka... afi var eitthvað að stríða mér og ætlaði að setja eitthvað framan í mig og ég bakkaið nottla  og datt beint ofan í olíudall sem var næstum yfirfullur af olínu og einhverju sulli... ég var í nýjum fötum sem ég ætlaði að sýna afa en mamma þurfti að fara með mig beint inn og þvo mér... afi hló bara af mér og fannst þetta fyndið.. mér auðvitað líka... ;)

svo eitt skiptið þegar við fórum suður gaf afi mér bangsa sem var selur.. ég á hann enn í dag og hann var í bílnum hjá afa alltaf... þetta er bansi sem er orðin alveg 14 ára gamall bangsi ef ekki eldri... :lol:

en já við leifur förum núna til útlanda 10.maí.. þetta er fyrsta ferðin mín út og mín fyrsta reynsla af flugvélum.. ég hef aldrei flogið áður.. ;) þetta verður bara gaman... :haha:

og svo munið að kvitta fyrir ykkur... það er algjört must!!!! :klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 11:31:11 / black

styttist í páskana

jæja það styttist óðfluga í þessa páska.. vá áður en maður veit af þá verður komin ágúst.. en já það styttist í það að fólk fái að sprengja sig á súkkulaði frá hinum og þessum sælgætisgerðum og miss góðum líka....

ég og kallinn ætlum að fara norður um páskana sem sagt heim... þetta verður bara gaman... fara heim og hitta fjölskylduna...  pabba gamla, ömmu og afa og alla vinina...

þetta verður bara gaman og júlía verður hjá okkur um páskana.... :) en ég læt heyra í mér þegar páskarnir eru búnir...

munið að kvitta fyrir ykkur hérna... :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 12:35:16 / black

valetníusardagurinn og allt það

jæja þá er valentínusardagurinn og konudagurinn búnir.. þetta voru bara fínir dagar svo sem ekkert öðruvísi.. en á konudeginum þá ákváðum við leifur að kíkja bara aðeins út. við fórum til afa því að afi minn greindist með krabbamein í höfði fyrir ekki svo löngu en það er allt í lagi núna hann er að fara í geislameðferð og er að ná góðum bata hann er búinn að fá matarlistina aftur og er búinn að þyngjst ú 58kg í 63kg þannig að það er allt að koma. em já við kítum í heimsókn til hans og konunnar hans. hann var bara sprækur og allt það. við vorum hjá honum í alveg 1klukkutíma. svo fórum við í kolaportið og haldið þá ekki að ég hafi séð manneksju sem ég hélt ég myndi ekki sjá allavegna á næstu árum. hann heitir maggi og hann bjó á akureyri en var líka í skóla á húnavöllum, sem sagt heima í sveitinni... en já hann og einvher vinur hans voru þarna þegar við komum.. hann hefur svo sem lítið breyst en hann er bara komið með mikið hár.. en já þessi vinur hans talaði bara við mig eins og hann væri búinn að þekkja mig lengi... vá skrítinn... en já svo vorum við bara að skoða og leifur keytpi kveikjar handa mér sem að er alveg geggjaður og hann keypti sér líka.. en svo vorum við að rölta í harðfiskahorninu og þá sáum við antíu sem var alltaf á ópus á meðan hann lifði.. hún spjallaði við okur í alveg ágætan tíma.. svo var komið nóg af spjalli maður var kominn með munnræpu.. :) nei segi svona.. við fórum á kaffistofuna í horninu og keyptum okkur eina súkkulaðibitaköku og leifur fékk sér langloku... svo fórum við ú í bíl og okkar fannst bílinn svo skítugur að utan að við ákváðum að fara og þrífa hann hátt og lágt.. þegar við vorum búin að því þa´fórum við nú bara heim og tókum til og svo kúrðum við okkur fyrir framan tívíið og horfum á myndir.. þetta var bara góður dagur fannst mér... mér er sama hvað þér finnst en mér leið vel... þetta var minn dagur.... jæja bless í bili...

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 21:55:45 / black

hæ ho og allt það

jæja þa er komið nytt ar.. gleðileg jol og farsælt komandi nytt ar og allt það.. þetta var það eina sem maður heyrði um hatiðirnar.. en ja inga var bara heima i bænum um aramotin og djammaði með systur sinni.. leifur var að vinna a aramotaballinu og eg var bara að djamma og skemmta mer með vinum minum og litla broður... þetta var bara mjög gaman allt saman en það var hundfult að þurfa að fara suður aftur.. en svona er þetta bara.. jolin vorum samt bara mjög goð hja okkur.. við vorum þrju heima eg, leifur og inga. leifur eldaði matinn og við inga gerðum allt tilbuið... svo vorum við bara i rolegheitunum heima til 9 þa forum við heim til mömmu og pabba hennar ingu og fengum kvöldkaffi. svo a joladag forum við aftur til þeirra og fengum hangikjöt i hadeginu. svo a annan i jolum forum við i matarbod hja ömmu og afa hans leifs sem sagt eg og hann og svo forum við til sylviu ömmu minnar i mat... allt með stuttum tima... en ja hatiðin var bara mjög goð og maður naði að slappa af og hlaða batterinin... en svo er maður bara að fara að kaupa ser ibuð og svona.. hætta þessu leigurugli... :$ en jamm hlakka til að heyra fra ykkur... tutilu


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 18:51:42 / black

hæhæhæ og allt það

jæja þá fer að styttast í þessi blessuðu jól sem allir eru farnir að auglýsa svona svakalega maður má varla snúa sér þá sér maður eikkað sem tengist þeim.. en já við leifur ætlum að halda okkar jól heima... ohh hvað það verður gaman.. en já annars er allt gott að frétta af okkur... maður er bara að vinna á fullu eins og maður getur til að eiga einhverja peninga.. en já við vorum að fá okkur hund sem er algjör rúsína... en ég þarf því miður að fara :$ en ég skal reyna að vera duglegri að blogga.... tútúlú... í bili...

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.10.2005 19:35:42 / black

sorry

hæhæ fyrirgefið hvað ég er ekkert búin að skrifa en ég er bara búin að vera veik og  svona... en jamm ég skal reyna að vera duglegri að blogga...

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3